Tjaldsvæði

Tjaldsvæðið

Tjaldsvæðið er opið frá 1 maí til 31 september.

Ef þú ert að leita að fjölskylduvænu tjaldsvæði nálægt Reykjavík þá er tjaldsvæðið í Hafnarfirði rétti staðurinn. Hafnarfjörður er þriðji stærsti bær Íslands með um 30.000 íbúa. Bærinn er oft kallaður bærinn í hrauninu enda er hraun allsráðandi. Einnig er Hafnarfjörður með marga íbúa huldufólks. Keyrt er inná Víðistaðatún eftir gangstíg við hlið Lava Hostel/ skátaheimilisins.

Tjaldsvæði Hafnarfjarðar er á Víðstaðatúni sem er fallegur listaverkagarður umkringdur hrauni. Rólegt, hlýlegt og fjölskylduvænt umhverfi með nægu plássi fyrir börnin til að leika sér. Stutt í alla þjónustu og miðbæ Hafnarfjarðar.
Heitt og kalt vatn, sturtur, þvottavél, Wi-Fi og salerni við tjaldsvæðið. Einnig eru þar útivaskar til uppvasks og rafmagn á svæðinu.

Tjaldsvæðið er rekið af skátafélaginu Hraunbúum og rennur ágóði þess í uppbyggingu á skátastarfinu.

Bókaðu stæði

Við getum ekki tekið á móti hýsum sem eru lengri en 12 metrar.

Svæði A

Án rafmagns

Fyrir tjöld

3.000 kr fyrir tjald (einn fullorðinn innifalið)


2.500 kr fyrir auka fullorðinn


Frítt fyrir 13 ára og yngri


Gistináttaskattur á hvert tjald 400 kr.


Svæði B

Aðgengi að rafmagni

Fyrir bíla eða hýsi

3.500 kr fyrir bíl eða hýsi (einn fullorðinn innifalið)


2.500 kr fyrir auka fullorðinn


Frítt fyrir 13 ára og yngri


1.300 kr. fyrir rafmagn á dag


Gistináttaskattur á hvern bíl eða hýsi 400 kr.

Svæði C

Ekki aðgengi að rafmagni

Fyrir bíla eða hýsi

3.500 kr fyrir bíl eða hýsi (einn fullorðinn innifalið)


2.500 kr fyrir auka fullorðinn


Frítt fyrir 13 ára og yngri


Gistináttaskattur á hvern bíl eða hýsi 400 kr.


Fyrir hópa bókanir hafið þá samband í gegnum info@lavahostel.is

Aðstaða

Klósett

Sturtur

Heitt og kalt vatn

Þvottavél og þurkari

Losun á ferðaklósetti

Uppþvottaaðstaða

Kolagrill og bekkir

Rafmagn 1.300 kr á dag

Verð 2025

  • Tjald: 3.000 kr. (einn fullorðinn innifalið)
  • Bíll eða hýsi: 3.500 kr. (einn fullorðinn innifalið)
  • Auka fullorðinn: (14 ára og eldri): 2.500 kr
  • Frítt fyrir 13 ára og yngri.
  • Rafmagn: 1.300 kr.

Gistináttaskattur er 400 kr á tjald/bíl eða hýsi fyrir hverja nótt.

Reglur

Ferðbúinn ehf. (kt.630293-3329) rekur tjaldsvæðið og ber ábyrgð á afhendingu þeirra þjónustu sem keypt er hér.

  • Aðilar undir 18 ára þurfa að vera í fylgd með forráðamanni.
  • Takmarkið hávaða þannig að þú ónáðir ekki aðra gesti.
  • Borgið hverja nótt fyrirfram annars eigið hættu á að missa stæðið.
  • Bílar sem ekki er verið að sofa í þurfa að vera lagðir upp á bílastæði.
  • Við bjóðum ekki upp á langtímastæði og er hámarks dvöl 7 dagar.
  • Varðeldar eru bannaðir.
  • Verðmæti eru á eigin ábyrgð.
  • Hundar eiga að vera í bandi.
  • Það má ekki reykja eða elda í aðstöðuhúsinu.
  • Vinsamlegast farið með ruslið upp í sorpgerðið sem er staðsett fyrir ofan aðstöðuhúsið.
  • Ekki keyra inn á svæði A (aðeins tjöld).
  • Þú samþykkir að vera vaktaður með öryggismyndavélum sem eru við innganginn á tjaldsvæðinu og að vera vaktaður með númerplötu skanna sem hleypir bílunum inn um hliðið.
  • Þú samþykkir að leyfa okkur að senda tölvupóst með kvittun og upplýsingum um svæðið.
  • Greiðanda gefst kostur á að afbóka sig allt að 24 tímum fyrir bókaða dagsetningu og fá endurgreidda upphæð að frádregnu 500 kr. skráningargjaldi endurgreitt.
  • Ef dvöl er stytt fæst 50% endurgreiðsla fyrir þær nætur sem ekki eru nýttar. Ef dvöl styttist eftir kl. 13:00, dregst ein nótt frá heildar endurgreiðslu.
  • Gestur tjaldsvæðis þarf að vera með kvittun útprentaða eða vistaða í snjallsíma þegar hann er á svæðinu og geta birt tjaldstæðavörðum við eftirlit á svæðinu.
  • Gestir tjaldsvæðis geta komið sér fyrir eftir kl. 13:00 á svæðinu. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að tjalda fyrir þann tíma.
  • Gestir tjaldsvæðis þurfa að vera búnir að yfirgefa tjaldsvæðið fyrir kl. 12:00. Ef aðstæður leyfa geta landverðir gefið heimild til að seinka brottför.
  • Hámarksfjöldi gesta í hverju stæði er 6 einstaklingar 14 ára eða eldri (börn 13 ára og yngri eru ekki takmarkandi þáttur). Ef um fleiri er að ræða þarf að kaupa stæði til viðbótar.
  • Óheimilt er að framselja bókað stæði.
  • Verð á vörum og þjónustu eru birt með VSK.
  • Bókun þín gætur verið gjaldfærð hvenær sem er eftir að bókun hefur verið staðfest.
  • Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ef eitthvert ákvæði skilmála þessara verður dæmt ógilt, ólöglegt eða óhæft til fullnustu, dregur það ekki á neinn hátt úr gildi, lögmæti eða fullnustuhæfi annarra ákvæða skilmálanna. Rísi mál út af skilmálum þessum skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.

Kort af svæðinu: